Þjónusta
Við vöktum hvernig og hvort fyrirtækið þitt kemur fram í svörum frá ChatGPT, Gemini og Perplexity, og hjálpum þér að styrkja sýnileikann þar sem fólk er í raun að spyrja.
Við fylgjumst með raunverulegum spurningum sem fólk gæti spurt AI um fyrirtækið þitt.
Sjáðu hversu oft þú birtist í AI-svörum í samanburði við aðra á sama markaði.
Greinum tæknileg atriði, efni og uppbyggingu vefsins svo AI-kerfi eigi auðveldara með að skilja hann.
AI-sýnileiki segir til um hvort og hvernig fyrirtæki, vörumerki eða vefsíða birtist í svörum frá AI-kerfum á borð við ChatGPT, Gemini og Perplexity.
Sífellt fleiri nota AI til að leita að fyrirtækjum, vörum og þjónustu. Ef fyrirtækið þitt birtist ekki í svörunum geta samkeppnisaðilar fengið forskotið.
Vaktaðar spurningar eru raunverulegar spurningar sem mögulegir viðskiptavinir gætu spurt AI. Við fylgjumst með hvort vörumerkið þitt sé nefnt, hvernig því er lýst og hvort vísað sé í efni af vefnum þínum.
Já. Við berum saman hversu oft fyrirtækið þitt og helstu samkeppnisaðilar birtast í AI-svörum. Þannig færðu skýrari mynd af stöðu vörumerkisins og hlutdeild þess í svörunum.
Það fer eftir þjónustupakkanum. Hægt er að vakta sýnileika í helstu AI-kerfum og bera niðurstöðurnar saman á einum stað.
Já. Þú færð yfirlit yfir heimsóknir á vefinn, vinsælustu síðurnar, virkni gesta og landfræðilega dreifingu. Einnig er hægt að greina umferð frá AI-kerfum og bera hana saman við heimsóknir raunverulegra notenda.
Vefúttektin greinir tæknileg atriði og tækifæri til að bæta efni, SEO og AEO. Einnig eru skoðaðir þættir eins og myndalýsingar, innri tenglar og uppbygging einstakra síðna.
AEO stendur fyrir Answer Engine Optimization eða bestun fyrir svarvélar. Markmiðið er að gera efni vefsins skýrt, gagnlegt og aðgengilegt svo AI-kerfi eigi auðveldara með að skilja það, vísa í það og nýta í svörum.
Nei, ekki er hægt að tryggja birtingu í AI-svörum. Vöktunin sýnir núverandi stöðu og hjálpar okkur að finna markviss tækifæri til að styrkja sýnileikann.
Vöktun, mælingar og reglulegt yfirlit eru innifalin samkvæmt þjónustupakkanum. Breytingar á vefnum, nýtt efni og aðrar úrbætur eru metnar og verðlagðar sérstaklega.